Frí sending innanlands ef verslað er fyrir 9.000 kr eða meira!

Klukkur


Klukkurnar eru smíðaðar á Jaðri í Suðursveit. Þær eru skornar út úr 2mm áli með skurðarvél sem við hönnuðum og smíðuðum. Þær eru dufthúðaðar í gamla fjósinu á bænum og loks er þeim pakkað inn í frauðplastumbúðir sem við sníðum utan um þær. Klukkurnar eru handunnar sem gerir það að verkum að engar tvær norðurljósaklukkur eru nákvæmlega eins, og því hver og ein einstök.