Klukkur
ATH!!
** Því miður eru margar klukkur orðnar uppseldar hjá okkur en hægt er að leggja inn pöntun í s: 770-4252 eða inn á malmlist@bmj.is en þær pantanir verða ekki afhentar fyrr en um miðjan júlí! **
Klukkurnar eru smíðaðar á Jaðri í Suðursveit. Þær eru skornar út úr 2mm áli með skurðarvél sem við hönnuðum og smíðuðum. Þær eru dufthúðaðar í gamla fjósinu á bænum og loks er þeim pakkað inn í frauðplastumbúðir sem við sníðum utan um þær. Klukkurnar eru handunnar sem gerir það að verkum að engar tvær norðurljósaklukkur eru nákvæmlega eins, og því hver og ein einstök.